jæja er ekki komin tími á blogg á þessa
lifandi síðu hjá okkur. nú höfum við enga afsökun. engin próf
og engin skóli. við erum sem sagt komin í
sumarfrí.
Svo byrjar ballið um hvað í fjandanum á ég að
blogga, ekki get ég bloggað um hvað á daga mína hefur drifið því
ekki hafa þeir verið áhugaverðir.
Ég get kannski byrjað að seigja frá því að
2.fl skellti sér til eyja á laugardaginn þar sem við hittum Tann
Tonn og félaga í Íbv og ég get svo svarið það að þetta var í fyrsta
skipti sem ég hef komið til eyja í svona líka guðdómlegu veðri. Við
byrjuðum eimmitt á því að taka okkur rúnt um eyjuna og hún var líka
bara frekar krúttleg. Svo byrjaði leikurinn sem gekk bara upp og
ofan og endaði með jafntefli 2-2 við hefðum getað tekið öll 3
stigin en það mun gerast á heimavelli.
Svo er hann Hörður orðinn sjálfráða náði 18
aldusárinu 19 maí síðastliðinn og bauð hann okkur nú nýverið í
afmæli heim til sín sem var líka bara svona voðalega
skemmtilegt.

pfffff nú er ég allveg búinn.... Ég hugsa að ég
seigi ykkur bara hver staðann er á belles genginu
svakalega..
Berglind glóð er á fullu í Garðarvinnu hjá
Garðari best og í búðarleik í Benetton þess á milli. Auk þess
að vera á fullu í vinnu situr hún ekki auðum höndum í frítimanum
heldur sér um að hrafntinna hundurinn þeirra Atla hafi það sem
allra best, og er á fullu í stuðningnum við Atla og sést hún nú á
HK leikjum vel merkt sínum manni enda ekki annað hægt þar sem maður
leiksins er þar á ferðinni

Heiðrún er að gera góða hluti í Habitat þó svo að
hún geti ekki borið neitt að viti sökum millirifjagigtar. Jón
óskar hefur nú ekki undan við að hjúkra henni og dekra við hana.
Annars er hún á fullu í módelheiminum og stendur stúlkan sig þar
með stakri prýði. Á milli erfiðra vakta í Habitat og
forsíðumyndataka liggur stúlkan löngum stundum í baðkerinu til að
vinna upp fyrrum styrk.

Sara er á góðum stað í lífinu hún er ekki en
komin með fasta vinnu fyrir sumarið enda fer hún ekki fram á litlar
kröfur. Ef einhver þarna úti hefur vinnu sem er viðverulítil, hátt
launuð, fjölbreytt, skemmtileg og með skemmtilega vinnufélaga let
her know!. Annars tekur hun sig nú til og þrífur húsin hjá hinumn
og þessum stórstjörnum auk þess sem einstaka sinnum hún fer og
hjálpar Heiðrúnu á sínum erfiðu vöktum í Habitat.

Beglí er líkt og Begga á fullu í Garðar best og
hef ég heyrt að erfitt sé að fá hana til þess að stoppa svo dugleg
er hún. Einnig eyðir hún flestum sínum stundum í sundlaugum
bæjarins að worka tanið því jú someone got to do that! Beglí er
líka sterk á öllum HK leikjunum þar sem að hún sér alltaf um
stemmingunna öðru meigin í stúkunni og er maður ekki lengi að finna
hana þegar að við mætum á leikina.

------------->
Anna Fanný er líkt og aðrar á fullu í vinnu hjá
Garðar best og heyrst hefur að garðarnir hafi aldrei litið jafnvel
út og þeir hafa gert hingað til. Þegar að Anna Fanný kemur heim
eftir erfiða vinnudaga bíður Arnar Helgi eftir henni þar sem hann
tekur og pussy (bílinn) og bónar hann hátt og lágt. Anna fanný
eyðir líka löngum í herberginu sínu til þess að æfa söngröddina og
syngur hún lagið Andvaka af alkunni snilld.

Tanja litli eyjapeyinn okkar unnir sér vel á
eyjunni fögru eins og hún kallar hana og ætlar sér að skora grimmt
fyrir eyjastúlkur í sumar. Í vinnuni sínur hún á sér ansi
mjúka hlið þar sem að hún sinnir börnum eyjamanna með mikilli ástúð
og elur þau upp eins og henni einni er lagið. Þess á milli sést hún
spranga í klettunum, æfa fyrir keppnina sumarstúlka vestmanneyja
þar sem hún ætlar sér stóra hluti og reyna loksins að ljúka við
bílprófið sitt

Karen situr löngum að vinna við að koma
knattspyrnuvöllunum í lag í fagrlaundi. Eftir góðan tíma á völlunum
er komið að henni að miðla knattspyrnuhæfileikunum til yngri
iðkenda þar sem hún þjálfar 6. fl kvk. Svo ætlar hún sér einnig að
skora grimmt fyrir hk/víking í sumar. Á milli erfiðis skítur hún
sér til keflavíkur og patreksfjarðar og gleður bæjarbúa.

-------------> lengst til hægri
Berglind ýr er að fara dansandi glöð í gegnum
lífið þar sem hún dansar sig inn í hvern listdanskólann á eftir
öðrum enda þótti hún skila gífurlega mikilli aðsókn á
verrslóleikritin eftir að hafa dansað af sinni alkunni snilld í
gegnum öll leikritin.

Svo er það bara ég og ég er eins og ég er
sitjandi við tölvunna að blogga 
Sif